Category: Uncategorised

Lagabreytingafundur Lögréttu

Þann 17. mars var lagabreytingafundur Lögréttu haldinn í stofu M105 frá kl. 13:30-14:30. Um var að ræða fyrsta lagabreytingafund í tæp 11 ár, en seinasti fundur var haldinn 27. mars 2015. Alls voru 29 breytingartillögur lagðar fram á fundinum og allar tillögur voru samþykktar að undanskildum fimm tillögum, en þær voru samþykktar eftir breytingartillögur frá… Read more »

Skattadagur Lögfræðiþjónustu Lögréttu 2026

Skattadagur Lögfræðiþjónustu Lögréttu fór fram 8. mars sl. og heppnaðist einstaklega vel. Fjölmargir mættu og fengu ókeypis aðstoð frá laganemum við gerð skattframtala. Við viljum færa Grant Thornton endurskoðun ehf. okkar bestu þakkir fyrir dýrmæta aðstoð, sem og öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við framkvæmd dagsins. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur á… Read more »

Heimsókn Lögréttu til ELSA í London

Lögrétta hitti nýverið ELSA Westminster og ELSA Queen Mary til að skapa tækifæri til tengslamyndunar milli breskra og íslenskra laganema. Viðburðurinn var haldinn á háskólasvæði Westminster-háskóla, þar sem hvor hópur fyrir sig hélt kynningu um háskólalíf og réttarkerfi heimalands síns. Kærar þakkir fyrir að taka svona vel á móti okkur og sýna okkur hlýjar móttökur!… Read more »

Lögrétta og Jónsbók undirrita samstarfssamning

Jónsbók er stoltur styrktaraðili Lögréttu! Auður Bjarnadóttir, formaður, og Bjarki Snær Sigurðsson, gjaldkeri, undirrituðu nýlega samstarfsamning við gervigreindarlausnar fyrirtækið Jónsbók. Árshátíð Lögréttu sem var í nóvember síðastliðinn var í boði Jónsbókar. Samstarfið felur í sér að félagsmenn Lögréttu fá áskrift að Jónsbók á hagstæðum kjörum. Jónsbók er gervigreind sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga sem tengir… Read more »

Endurnýjaður samstarfssamningur LOGOS og Lögréttu

Auður Bjarnadóttir, nýr formaður Lögréttu, og Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri LOGOS, hafa skrifað undir endurnýjaðan samstarfssamning. Samningurinn tryggir áframhaldandi stuðning LOGOS við frábært starf Lögréttu bæði í námi og félagslífi laganema við HR.

Lögrétta vs. Orator 2025 (Málmurinn heim!)

Hinn árlegi Lögréttu vs. Orator dagur fór fram með glæsibrag þann 7. mars síðastliðinn. Dagskráin var stútfull af spennandi keppnum og viðburðum. Keppnin hófst með fótboltaleik þar sem Lögrétta hafði betur og tryggði sér fyrstu stig dagsins. Næst var komið að brenniboltanum, þar sem lið Orators tók stig til baka. Að loknum fyrri hluta dags… Read more »

Skattadagur Lögréttu 2025

Lögfræðiþjónusta Lögréttu hélt hinn árlega Skattadag þann 9. mars sl. Viðburðurinn, sem hefur fest sig í sessi sem mikilvægur liður í samfélagsþjónustu laganema, bauð upp á endurgjaldslausa aðstoð við skil á skattframtölum frá kl. 10 til 15. Aðsóknin var afar mikil og tóku aðstoðarmenn dagsins dýrmæta reynslu sem mun án efa nýtast þeim í framtíðinni…. Read more »

London ferð Lögréttu 2025

Ferð Lögréttu til London fór fram með glæsibrag dagana 27. febrúar til 2. mars síðastliðinn. Ferðin var afar vel heppnuð og bauð upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Einn af hápunktum ferðarinnar var heimsókn okkar til íslenska sendiráðsins, þar sem þátttakendur fengu innsýn í starfsemi þess og mikilvægi sendiráðsins fyrir Íslendinga erlendis. Auk þess voru… Read more »