Skattadagur Lögfræðiþjónustu Lögréttu fór fram 8. mars sl. og heppnaðist einstaklega vel. Fjölmargir mættu og fengu ókeypis aðstoð frá laganemum við gerð skattframtala. Við viljum færa Grant Thornton endurskoðun ehf. okkar bestu þakkir fyrir dýrmæta aðstoð, sem og öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við framkvæmd dagsins.
Við hlökkum til að sjá ykkur aftur á næsta ári!