Af hverju ættu íslenskir laganemar að leggja áherslu á Evrópurétt í námi sínu?

Lagadeildir háskólanna á Íslandi í samstarfi við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), standa fyrir fyrirlestri í Háskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 10. febrúar 2016 kl. 14:00-14:30 í stofu M103 (dómsalnum).

Helga Jónsdóttir, stjórnarmaður ESA, fjallar um tækifæri sem felast í EES samningnum (nám, starfsnám og styrki) og um mikilvægi Evrópuréttarins í laganámi. Vikið verður að áhrifum EES-samningsins á daglegt líf Íslendinga og stöðu hans hér á landi í samanburði við aðrar EES þjóðir.

Helga mun jafnframt kynna nýja málflutningskeppni sem lagadeildir háskólanna bjóða upp á haustið 2016 þar sem nemendum gefst tækifæri á að spreyta sig í málflutningi um EES samninginn og öðlast dýpri skilning á EES samningnum.

Laganemar fá þar tækifæri til að læra af reyndum sérfræðingum á þessu sviði og hvernig á að undirbúa og flytja mál á ensku fyrir dómstólunum í Luxemborg. Þeir sem bera sigur úr býtum fá jafnframt tækifæri til að kynna sér stofnanir EES-samstarfsins í Brussel og dómstólanna í Luxemborg.

Helga Jónsdóttir er stjórnarmaður hjá Eftirlitsstofnun EFTA – ESA. Hún lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1978. Helga vann lengi innan stjórnsýslunnar, síðast sem ráðuneytisstjóri efnahags- og viðskiptaráðuneytis.  Hún hefur einnig unnið í forsætisráðuneyti, utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti.  Þá var hún borgarritari í Reykjavík í rúman áratug og bæjarstjóri í Fjarðabyggð í fjögur ár. Hún hefur verið formaður nefnda og ráða eins og tryggingaráðs, Landsvirkjunar og Hörpu og setið í fjölmörgum stjórnum m.a. fjármálafyrirtækja.  Helga átti sæti í stjórn Alþjóðabankans í þrjú ár fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin.