Stéttarfélag Lögfræðinga er nú stoltur styrktaraðili Lögréttu!
Auður Bjarnadóttir, formaður, og Bjarki Snær Sigurðsson, gjaldkeri, undirrituðu nýlega samstarfsamning við Stéttarfélag Lögfræðinga, en í tilkynningu þeirra kemur eftirfarandi fram:
Við erum afar ánægð með að hefja þetta samstarf og hlökkum til að styrkja tengslin við laganema strax á námsárunum.
Markmið samstarfsins er að kynna starfsemi Stéttarfélags lögfræðinga fyrir nemum og veita þeim innsýn í þau réttindi og þá þjónustu sem standa þeim til boða þegar þau hefja störf á vinnumarkaði.
Félagið veitir m.a. ráðgjöf:
– við fyrstu ráðningar
– um ráðningasamninga
– fyrir launa- og starfsþróunarviðtöl
– um túlkun kjarasamninga
Nemar eru hjartanlega velkomnir í félagið, sama hvar þeir starfa – og geta strax byrjað að ávinna sér réttindi í sjóðum félagsins. Við hlökkum til samstarfsins við Lögréttu.
Á myndinni má sjá Bjarka Snæ, gjaldkera, og Auði Bjarnadóttur, formann Lögréttu, ásamt Jóhanni Gunnari Þórarinssyni, formanni SL, og Önnu Margréti Steingrímsdóttur, leiðtoga stafrænnar þjónustu, félags- og markaðsmála Stéttarfélags Lögfræðinga.