Þann 17. mars var lagabreytingafundur Lögréttu haldinn í stofu M105 frá kl. 13:30-14:30.
Um var að ræða fyrsta lagabreytingafund í tæp 11 ár, en seinasti fundur var haldinn 27. mars 2015.
Alls voru 29 breytingartillögur lagðar fram á fundinum og allar tillögur voru samþykktar að undanskildum fimm tillögum, en þær voru samþykktar eftir breytingartillögur frá félagsmönnum.
Helstu breytingarnar voru þær að embætti markaðsstjóra Lögréttu bættist við stjórn félagsins og lögfest var frekari fyrirhyggja í fjármálum félagsins í tengslum við embætti gjaldkera. Nýju lögin má finna í heild sinni á heimasíðu félagsins undir flipanum „Um Lögréttu“ og „Lögin“.
Boðun til lagabreytingafundarins og framkvæmd fundarins fór eftir þágildandi 49. gr. laga Lögréttu (núgildandi 50. gr.).
Við þökkum þeim félagsmönnum sem sóttu fundinn kærlega fyrir komuna og fyrir vel heppnaðan fund!