Jónsbók er stoltur styrktaraðili Lögréttu!
Auður Bjarnadóttir, formaður, og Bjarki Snær Sigurðsson, gjaldkeri, undirrituðu nýlega samstarfsamning við gervigreindarlausnar fyrirtækið Jónsbók. Árshátíð Lögréttu sem var í nóvember síðastliðinn var í boði Jónsbókar.
Samstarfið felur í sér að félagsmenn Lögréttu fá áskrift að Jónsbók á hagstæðum kjörum.
Jónsbók er gervigreind sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga sem tengir saman lög, reglur og dóma með áreiðanlegum heimildavísunum.
Stjórn Lögréttu er spennt fyrir færsælu samstarfi við þetta metnaðarfulla fyrirtæki!