1. tölublað 11. árgangs Tímarits Lögréttu kom út í byrjun október.

Í blaðinu er ítarleg umfjöllun um tjáningarfrelsið og hatursorðræðu bæði greinar og viðtöl.

Tjáningarfrelsi hefur verið mikið í umræðunni síðustu ár og þá sér í lagi vegna þeirra óskýru marka sem liggja milli friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsis. Í blaðinu er ýmsum sjónarmiðum velt upp og tekið á áhugaverðum álitaefnum í tengslum við tjáningarfrelsi. Þessi útgáfa er því ákaflega viðeigandi viðbót í lögfræðilega umræðu á Íslandi.

Eftirfarandi greinar og viðtöl eru í 1. Tölublaði 11. Árgangs:

Elfa Ýr Gylfadóttir og Karl Axelsson – Mikilvægi faglegrar blaða- og fréttamennsku og hugleiðinga um það aðhald sem við veitum henni

Dr. Róbert H. Haraldsson – „Ég er Charlie en .. „ – Um tjáningarfrelsi og trúarsannfæringu

Róbert R. Spanó – „Er mér ekki frjálst að tjá hatur mitt á þér og öðrum?“

Rætt við Björgu Thorarensen,Gunnar Inga Jóhannsson og Pál Þórhallsson

 Annað efni:

  • Eiríkur Elís Þorláksson –  Útilokun erlendra regla frá íslenskum rétti
  •  Dr. Guðmundur Sigurðsson – Er breytinga þörf á íslensku siglingalögunum?
  • Ómar Berg Rúnarsson – Hvers konar stofnunum er heimilt að biðja EFTA-dómstólinn um ráðgefandi álit?

Tímaritið hefur vakið mikla athygli, sérstaklega hjá fjölmiðlafólki.

http://www.dv.is/frettir/2015/10/8/segir-ummaeli-gegn-samkynhneigdum-ekki-brjota-gegn-logum-um-hatursordraedu/

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/10/07/rett_ad_refsa_eda_raeda_malin/

http://www.ruv.is/frett/domsmal-gegn-fjolmidlafolki-fleiri-her