Málfundafélag
Samkvæmt 3. og 5. tl. 3. gr. laga Lögréttu er hlutverk Málfundafélags Lögréttu að stofna til umræðu um lögfræðileg málefni og að þjálfa félaga sína til lögfræðilegra viðfangsefna, rökfimi og mælskulistar. Félagið stendur því reglulega að opnum málfundum þar sem gestkomandi ræðumenn skiptast á skoðunum um ákveðið og fyrirliggjandi umræðuefni sem eru í brennideplinum hverju sinni, auk þess sem félagsmönnum og öðrum gestum gefst kostur á að kasta fram spurningum til framsögumanna og taka þátt í umræðunum. Í upphafi hvers skólaárs stendur félagið fyrir ferð til Þingvalla ásamt Sigurði Líndal lagaprófessor þar sem heimsóttar eru slóðir Lögréttu hinnar fornu og hinir árlegu Lögréttuleikar fara fram.

Málfundafélagið stendur einnig fyrir ræðunámskeiðum þar sem laganemum gefst kostur á að þjálfa og auka mælskulist og ræðumennsku sína. Vorið 2011 var í fyrsta sinn haldin málflutningskeppni innan lagadeildarinnar þar sem tvö lið háðu baráttu í almennu einkamáli sem flutt var fyrir þremur dómurum. Markmiðið er að gera þessa keppni að árlegum viðburði og standa fyrir vali á Málflutningsmanni Lögréttu og verðlauna sigurliðið. Skólaárinu lýkur svo með kaffihúsakvöldi þar sem áhugaverðir löglærðir einstaklingar hafa komið og sagt frá sér, starfi sínu innan lögfræðinnar og skemmtilegum sögum.
Í vetur er stefnt á það að gera starf Málfundafélagsins sem öflugast og sýnilegast, bæði innan veggja skólans og utan þeirra, og verður mikið um að vera hjá félaginu í vetur.
Formaður Málfundafélagsins er Snædís Ósk Sigurjónsdóttir en ásamt henni sitja í stjórn félagsins Katrín Viktoría Leiva, Sandra Steinarsdóttir og Magnús Már Leifsson.
Frekari upplýsinga um Málfundafélagið er hægt að afla með því að senda fyrirspurn á malfundafelag@logretta.is.
|
Formaður Málfundafélags: Snædís Ósk Sigurjónsdóttir
Netfang: snaedis at logretta.is
Símanúmer: 865-7894 |
Nefndarmaður: Katrín Viktoría Leiva
Netfang: katrinl09 at ru.is
Símanúmer: 691-3176 |
|---|---|
|
Nefndarmaður: Sandra Steinarsdóttir
Netfang: sandraste09 at ru.is
Símanúmer: 699-7512 |
Nefndarmaður: Magnús Már Leifsson
Netfang: magnusl10 at ru.is
Símanúmer: 865-3111 |



