Hátíðarmálfundur í tilefni afmælis Lögréttu

Málfundafélag Lögréttu kynnir:

-   Í tilefni 7 ára afmælis Lögréttu 8. mars  -

Hátíðarmálfund sem haldinn verður þriðjudaginn 9. mars 2010, kl.13:10 í stofu 231b í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.

 

Umræðuefni fundarins að þessu sinni er:

Staða ráðherraábyrgðar að landsrétti; eru ráðherrar ábyrgðarlausir að lögum?

Framsögumenn eru:

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og stundakennari við lagadeild HR.

Helgi Magnús Gunnarsson, formaður Ákærendafélags Íslands, saksóknari efnahagsbrota og stundakennari við lagadeild HR.

Atli Gíslason, hrl. og formaður þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

--------------------

Fundurinn mun standa í rúma klukkustund. Gert er ráð fyrir fyrirspurnum úr sal að loknum framsöguræðum.